
HIGH5
Næringarpakki - High5
Næringarpakki - High5
Sótt í verslun
Smiðjuvegur 6
Rauð Gata
200 Kópavogur
Ísland
Ertu að stíga þín fyrstu skref í íþróttanæringu eða langar þig einfaldlega að prófa vinsælustu vörurnar frá HIGH5? Þá er HIGH5 Starter Kit fullkominn byrjunarpakki. Hér færðu allt sem þú þarft til að upplifa hvernig rétt samsetning af orku, vökvun og endurheimt getur stutt við æfingar og keppnir.
Starter Kit inniheldur úrval af söluhæstu vörum HIGH5 sem eru hannaðar til notkunar fyrir, á meðan og eftir æfingu. Þú færð orkugel til að viðhalda orkustigi, orkudrykk og raflausnir fyrir góða vökvun, recovery drykk til að styðja við endurheimt og HIGH5 750 ml brúsa sem auðvelt er að taka með á æfingar.
Hvort sem þú stundar hlaup, hjólreiðar, þríþraut, líkamsrækt eða aðra úthaldsíþrótt er HIGH5 Starter Kit frábær leið til að finna þær vörur sem henta þér best.
Helstu kostir:
- Fullkominn byrjunarpakki fyrir þá sem vilja prófa HIGH5.
- Inniheldur vörur fyrir orku, vökvun og endurheimt.
- Hentar jafnt byrjendum sem reyndum íþróttamönnum.
- Tilvalinn fyrir hlaup, hjólreiðar, þríþraut og aðrar úthaldsíþróttir.
- 750 ml HIGH5 brúsi fylgir með.
- Hentar grænmetisætum.
Pakkinn inniheldur:
- 1 × HIGH5 Energy Gel
- 1 × HIGH5 Energy Gel Caffeine
- 1 × HIGH5 Energy Drink skammt
- 1 × HIGH5 Recovery Drink – Chocolate
- 2 × HIGH5 ZERO raflausnatöflur
- 1 × HIGH5 750 ml brúsa
