Hugi Hallgríms Körfuboltamaður

Fitness Sport

Hugi Hallgríms Körfuboltamaður

Söluverð17.990 kr Venjulegt verð20.990 kr
Magn:
Venjulega tilbúið eftir klukkutíma

Hugi Hallgríms Körfuboltamaður

Sótt í verslun

Afhending í boði, venjulega tilbúið eftir klukkutíma

Smiðjuvegur 6
Rauð Gata
200 Kópavogur
Ísland

Ég heiti Hugi Hallgrímsson og er leikmaður Hauka í efstu deild karla í körfubolta. Ég nota fæðubótarefni til þess að hjálpa mér að vera í eins góðu formi og hægt er yfir tímabilið. Til þess að vera afreksíþróttamaður er  ekki alltaf nóg að borða bara rétta fæðu heldur þarf maður stundum eitthvað extra og þar koma fæðubótarefnin að miklu gagni.

Þetta eru mínar uppáhalds vörur:


Nectar Prótein - Prótein er eitthvað sem allir íþróttamenn ættu að vera að taka sem viðbót við mataræðið þar sem það getur verið erfitt að ná próteinþörf dagsins úr venjulegum mat. Nectar fer einstaklega vel í mig og er frábært á bragðið.

Warrior Creatine (60skmt) - Ég hef tekið kreatín til þess að hjálpa mér að byggja upp vöðamassa, auka styrk, snerpu og stökk kraft.  Þetat ætti að vera númer eitt hjá öllum íþróttamönnum.

NaughtyBoy Hydration - Ég tek þessa steinefnablöndu sem mér finnst hjálpa mér gríðarlega mikið á æfingum og yfir daginn. Ég svitna mikið á æfingum og verð því að passa upp á að hlaða aftur inn vökva, steinefnum og söltum eftir æfingar. Það er ekki nóg að drekka bara vatn yfir daginn heldur þurfa að vera sölt og steinefni í líkamanum til þess að halda í vatnið. Þetta er eitthvað sem hefur klárlega hjálpað mér mikið.

Ath. Skrifið í athugasemdir ef þið viljið einhverjar ákveðnar bragðtegundir Ef ekkert er valið sendum við vinsælustu bragðtegundirnar.

VILTU SÆKJA?

Pöntunin þín er klár eftir klukkutíma!